þriðjudagur, september 19, 2006

Mikið er Vegbúinn með KK fallegt lag. Æ, það er svo fallegt að mig verkjar undan því. Það er líka einhver fyrsta minning mín af lagi sem mér sjálfri fannst virkilega fallegt. Eitthvað um 7 ára, að uppgötva minn eigin smekk. Ofboðslega sæt minning eitthvað.